- ~160
- Félagar
- ~15
- Flugvélar í 5 skýlum
- 4.000 kr.
- Árgjald
Flugklúbbur Selfoss er áhugamannaklúbbur um vöxt og viðgang flugs á Selfossi. Megin viðfangsefni klúbbsins er rekstur Selfossflugvallar, þar með talið flugstöðvarinnar, útleiga og rekstur á flugskýli og félagsstarf. Félagar í klúbbnum eru um 160, þar af um 50 sem hafa, eða hafa haft, réttindi til að fljúga flugvélum. Flugvélar í eigu klúbbfélaga eru um 15 í 5 flugskýlum sem eru á flugvallarsvæðinu. Allir geta gengið í flugklúbbinn og er árgjaldið kr. 4.000,-.
Meðal fastra punkta í starfsemi klúbbsins er árleg lendingarkeppni, Pétursbikarinn, sem er haldin á sumrin. Félags- og fræðslufundir eru haldnir öðru hverju yfir veturinn og aðalfundur að vori.
Lengi vel ríkti mikil óvissa um framtíð flugvallarins en þeirri óvissu hefur nú verið eytt með staðfestingu á deiliskipulagi af flugvallarsvæðinu 2008 og því opnaðist um leið sá möguleiki að byggja fleiri flugskýli á vallarsvæðinu. Nú eru allnokkrar lóðir tilbúnar fyrir byggingar og er áhugasömum bent á Sveitarfélagið Árborg fyrir úthlutun lóða.
Það er skoðun flugklúbbsins að Selfossflugvöllur gegni mikilvægu hlutverki, ekki bara fyrir okkur klúbbfélagana, heldur einnig sem samgöngumannvirki fyrir bæjarfélagið. Með tímanum muni flugvöllurinn skapa möguleika á aukinni þjónustu fyrir bæjarbúa og ferðamenn og annarri atvinnutengdri starfsemi. Við bjóðum nýja félaga velkomna í Flugklúbb Selfoss.
Tilgangur félagsins
- að stuðla að framgangi flugmála
- að halda uppi samvinnu og félagslífi og stuðla að fræðandi starfi meðal félaga
- að vinna að hagsmuna- og áhugamálum félaga
- að halda uppi sambandi við hliðstæð félög innanlands og erlendis
Félagið er aðili að Flugmálafélagi Íslands. Starfsár félagsins miðast við almanaksár og aðalfund skal halda fyrir 1. maí ár hvert. Félagslögin tóku gildi 9. apríl 1983 og voru síðast endurskoðuð á aðalfundi 18. apríl 2017.
Byggt á efni af eldri vef Flugklúbbs Selfoss. Upplýsingar um stjórn og félagafjölda kunna að hafa breyst.
Til baka á Klúbbinn