Flugklúbbur Selfoss

Lendingarkeppni · frá 1985

Pétursbikarinn

Árleg lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss, haldin til minningar um Pétur Sigvaldason.

1985
Fyrst haldinn
4
Lendingar í keppni
Fæst stig
Sá sigrar

Árleg lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss, Pétursbikarinn, er haldin á Selfossflugvelli seinni part sumars ár hvert. Keppnin er haldin til minningar um Pétur Sigvaldason sem var gestur á stofnfundi flugklúbbsins þann 16. maí 1974, en hann var þá ritari Vélflugfélags Íslands (VFFÍ).

Á fundinum gaf Pétur 5.000 krónur til flugvallargerðar á Selfossi og var það fyrsta fjárframlagið til Selfossflugvallar. Pétur fórst í flugslysi tæpum þremur vikum síðar, í Svínadal í Dölum, 2. júní 1974.

Gunnar Þorvaldsson, félagi í Flugklúbbi Selfoss, og kona hans gáfu Pétursbikarinn til minningar um Pétur Sigvaldason árið 1985.

Hvernig keppnin fer fram

Lendingarkeppni felst í því að flugmenn keppa í lendingum á flugvélum sínum. Hver flugmaður tekur fjórar lendingar:

  1. 1

    Floginn umferðarhringur, venjuleg lending — allt leyfilegt.

  2. 2

    Floginn umferðarhringur, dregið af mótor í 1000 feta hæð þvert af áætluðum lendingarstað. Ekki leyfilegt að nota mótor eftir það.

  3. 3

    Floginn umferðarhringur, dregið af mótor í 1000 feta hæð þvert af áætluðum lendingarstað. Ekki leyfilegt að nota mótor né flapa eftir það.

  4. 4

    Floginn umferðarhringur, hefðbundin lending yfir 2 metra hindrun sem er 50 metra frá núllpunkti. Aðflugsferill skal vera eðlilegur.

Flugmenn fá refsistig samkvæmt alþjóðlegum reglum um lendingakeppni og því færri sem þeir lenda nær réttum lendingarstað. Sá sigrar sem fær fæst refsistig. Í flugtaki reynir mest á flugvélina en í lendingunni reynir mest á flugmanninn — lendingarkeppni er því hæfniskeppni flugmanna, sér og öðrum til skemmtunar og til að þjálfa öguð vinnubrögð.

Sigurvegarar frá upphafi

ÁrSigurvegari
1985Ragnar J. Ragnarsson
1986Ragnar J. Ragnarsson
1987Jóhannes Örn Jóhannesson
1988Orri Eiríksson
1989Orri Eiríksson
1990Ágúst Ögmundsson
1991Sigurður KarlssonFlugklúbbi Selfoss
1992Guðmundur JónssonFlugklúbbi Selfoss
1993Hörður Guðlaugsson
1994Haukur Snorrason
1995Guðmundur Ásgeirsson
1996Ekki haldið
1997Ingólfur Jónsson
1998Þorsteinn Kristinsson
1999Magnús Víkingur Grímsson
2000Sigurður KarlssonFlugklúbbi Selfoss
2001Þorsteinn MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2002Þorsteinn MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2003Björn Ásbjörnsson
2004Þorsteinn MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2005Sigurður Georgsson
2006Snorri B. JónssonFlugklúbbi Mosfellsbæjar
2007Þorsteinn MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2008Hjörtur Þór HaukssonFlugklúbbi Selfoss
2009Snorri B. JónssonFlugklúbbi Mosfellsbæjar
2010Jón Karl SnorrasonFlugklúbbi Mosfellsbæjar
2011Þorsteinn MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2012Þorsteinn MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2013Óli Öder MagnússonFlugklúbbi Selfoss
2014Magnús V. GrímssonFlugklúbbi Mosfellsbæjar
2015Magnús V. GrímssonFlugklúbbi Mosfellsbæjar
2016Ómar BjarnasonFlugklúbbi Mosfellsbæjar
2017Pétur JökullFlugklúbbi Mosfellsbæjar

Byggt á efni af eldri vef Flugklúbbs Selfoss.

Til baka á Klúbbinn