Flugklúbbur Selfoss
Til baka í fréttir

Vel heppnað flugmót á Selfossi

Fjöldi flugvéla og gesta mætti á árlegt flugmót klúbbsins. Takk fyrir frábæran dag!

Árlegt flugmót Flugklúbbs Selfoss fór fram í blíðskaparveðri og heppnaðist einstaklega vel. Fjöldi flugvéla lenti á vellinum og gestir nutu þess að skoða vélar og spjalla um flug.

Við þökkum öllum sem mættu og þeim sjálfboðaliðum sem gerðu daginn mögulegan. Sjáumst að ári!